Wednesday, November 19, 2008

Gálgafrestur og punktablogg

Já best að prufa "nýjustu" blogg tæknina , síðasta mánuðinn hef ég..

- Ekki verið drekinn.. frétti það í síðustu viku, Gummi þú ert seif í íbúðinni fram á næsta sumar:)
- Fengið foreldra mína og Kristjönu litlu systur í heimsókn, mjög mjög gaman.
- Lét þetta sama fólk fá 800 pund í seðlum til að koma pening til íslands og seldi þeim gjaldeyri.
- Orðið vitni að því að 10 þús íslenskar fóru á 35 pund í bankanum í dag í svokölluðum "innherjaviðskiptum".
- Sungið "Hvar er, hvar er, hvar er, hvar er krónan mín" með Norðmönnum á Brick Lane.
- Keypt mér lestarmiða til Brussel þegar ég hélt að ég  væri atvinnulaus, þurfti svo að sækja   um frí í dag svo ég komist í ferðina.
- Blótað íslenskum stjórnmálamönnum og Seðlabanka..  ekki benda á mig er viðeigandi.
- Skráð mig í stjórnmálaflokk í fyrsta skipti, og já það er ekki Sjálfstæðisflokkurinn.
- Bókað flug til Íslands yfir jólin.
- Spáð í undarlegum tilviljunum, ef ég væri ekki í London væri ég á hausnum.
- komist að því að Gummi kann að höndla kattavandmál, maðurinn tók við fjórum kisusvínum en  eftir stendur einn.. síðast þegar ég vissi.
- Saknað Snældu 
- Eignast frænku sem ég er ekki enn búin að hitta.
- Öfundað Ásdísi að því að vera langt í burtu frá öllu, þrátt fyrir að hún sé í fátæku landi í  Afríku.
- Safnað bjórvömb..sem ýtir undir þá kenningu að ég sé strákur eða fitna asnalega.






Saturday, October 11, 2008

Ég veit vart hvað ég get sagt

En langaði allavega að sýna smá lit og segja að ég er á lífi.

Síðasta vika er búin að vera hræðileg, ég hef grátið og hlegið, hringt á hjálp frá Íslandi, drukkið bjór fyrir síðustu pundin.. og uppfært CV-ið mitt.

Baggalútur gerir sitt í að bjarga geðheilsu minni.
Ég komst að því í gær að ég á fleiri vini í Bretlandi en ég hélt, það ætla allir að standa saman og hjálpast að við að finna vinnu. Það er allavega gott að vita að það eru ekki allir á leiðinni að bomba Ísland.

Í kvöld ætlum við að elda mat og fá Sigga, Signýu og börnin til okkar. Svo ætlum við að hlæja og spila fram á nótt.

....ég lofa að lýsa þessu betur þegar ég veit hvað er að gerast en núna er enn allt svo óljóst.

Saturday, August 30, 2008

Skvísan er á lífi:)

Já já, ég er enn með internet:)
Í dag er líklega síðasti sumardagurinn í London, 27 stiga hiti og ég var að koma heim úr Shoredich Park.
Hvað er betra en að sitja inni og blogga þegar sólin skín úti. Á morgun á að koma þrumuveður og 10 daga rigning á einu degi segja menn í mjög virtum fjölmiðlum hér.
Annars var vikan ansi ánægjuleg, þ.e. það þarf ekki mikið til að gleðja mitt litla hjarta.
Ég bý í hverfi sem er alveg við Regents Canal. Þar er mikið af gömlum, ónotuðum verksmiðjum í bland við ný og flott hús. Út um stofugluggann minn hef ég útsýni yfir eina slíka. Hún er afgirt og vöktuð og ég er alltaf að bíða eftir að þeir fari að rífa hana.
Banksy er þekktur götulistamaður hér og menn segja að hann búi í austur London. Hann notar borgina sem striga og það eru ýmis graffiti hingað og þangað í hverfinu sem eru sögð vera eftir hann. Það eru líka margir sem herma eftir honum en hann er allavega mjög þekktur og ég er með mynd eftir hann í stofunni minni.

Þegar ég vaknaði á miðvikudagsmorgun með kaffibollann minn og sígó fékk ég þá undarlegu tilfinningu að einhver væri að horfa á mig, leit út um gluggann og þetta blasti við:






Hvort þetta var Banksy sjálfur eða einhver að herma eftir honum þá er allavega búið að bæta útsýni mitt til muna. Hann hefur þurft að klifra yfir girðingu og forðast öryggisverði til að komast þangað inn.

Mig langaði að ná betri myndum og fyrst að hann gat brotist inn gat ég það líka:)


Þetta er pottþétt á öryggismyndavélunum, enda er maður alltaf í mynd hérna hehe.

Annars er nóg búið að gerast í sumar, eiginlega of langt síðan ég hef bloggað til að telja það allt upp. Ég og Gummi rifjuðum upp þriðjudagsfyllirí í Notting Hill í maí, ég var ekki mætt í vinnu fyrr en á hádegi dagin eftir.. en það var þess virði. Hann er að fara að taka að sér alla kettina mína heima og fær að búa í íbúðinni minni í staðinn. Úff ég held ég þurfi bráðum að fara að borga með þessu, þetta eru orðin fjögur stykki. En já Þjóðverjarnir eru að fara að flytja út og Gummi ætlar að leigja af mér.
Þau hringdu í mig í sumar og sögðu að versnandi gengi krónu væri farin að valda þeim töluverðum vandræðum (ég er btw með erlent lán á íbúðinni) og þau gætu ekki borgað svona mikið í leigu. "Væriru kannski til í að lækka leiguna um svona 30 þús á mánuði?"
Ahahaha, já ég hló. . held meira að segja í símann. Þau eru allavega bjartsýn.

Annars er ég hægt og rólega að bæta inn myndum, læt þær bara tala sínu máli..

Wednesday, April 30, 2008

Flutt úr gasklefanum og komin með internet

jæja, loksins komin með almennilegt heimili og internet.

Eftir mikla bloggleti er erfitt að finna stað til að byrja á.
Ég semsagt gafst upp á íbúðinni í Stoke Newington af því að hún hreinlega virkaði ekki, ég bjó í sýndarheimili sem var með rosa fína tengla á veggjum fyrir sjónvarp og síma en nákvæmlega ekkert á bak við þá.. fyrir utan leka á öllu mögulegu þá virkaði reyndar rafmagnið.
Þegar ég kom heim úr páskafríi á íslandi var búið að bora gat í gegnum veggin utanfrá og troða sjónvarpslofneti inn... utan á húsinu eru endalaust mikið af vírum, þetta er eitthvað nýtt fyrir mér en greinilega frekar algengt í London.
Ég fór í gönguferð upp í Arsenal hverfið (sem er mjög stutt frá Stokey) um daginn og sá að þetta er líklega venjan..
..veit samt ekki hvort myndin er af sjónvarslofnetum eða einhverju öðru sem menn tengja svona utanhhúss.. þegar mín símalína kom loks inn var hún líka tengd utanfrá. Munurinn er að þeir náðu samt að nota gatið sem var á sýndartenginu.

Jæja nóg af leiðindum, ég flutti aftur upp á Old Street og gæti ekki verið ánægðari, hér virkar allt og meira að segja komin með internet.




Ég er annars búin að fá ólöfu systur í heimsókn frá Brussel og skottast til hennar líka.. missti reyndar af lestinni en náði að grenja mig inn í næstu lest þrátt fyrir að vera með no-refundable ticket. Þar sá ég súrasta dansleikhús ever sem stóð í rúma tvö tíma.. þarf af hljóp gaurinn alsber fram og til baka um sviðið í svona korter, mismikið á fjórum fótum. Ég er að giska á að þetta hafi eitthvað átt að tengjast þróun og öpum en er samt litlu nær. Myndin er af okkur systrum eftir að við uppgvötuðum að glimmerið mitt hafði sprungið útum alla snyrtitösku og þá var bara eins gott að nota það, ólöf fann svo rauða málningu sem punktinn yfir i-ið.


Sumarið kom og fór á laugardaginn, við íslenska forritunarklíkan í London áttum frábæran dag sem endaði að sjálfsögðu í gleði heima á Old Street.


London fields í miðri Hackney.. þetta er í göngufæri frá mér.


Svessi og Solla voru í góðum gír.. eins og við öll.


Anars er það bara löng helgi í New York eftir viku... jisús hvað verður gaman!

TODO: Hækka heimildina á kreditkortinu.



Friday, March 7, 2008

Í tilefni dagsins...

..hef ég ákveðið að blogga í vinnunni.

Eins og margir vita flutti ég í byrjun febrúar í nýja íbúð sem er á besta stað í smáþorpinu London. Þar er búið að ganga á ýmsu þar sem iðnaramenn hér virðast ekkert þurfa að kunna til að henda upp einu húsi eða svo. Það er búið að flæða úr þvottavél og uppþvottavél, ég hef líka verið heitavatnslaus og að sjálfsögðu er enn ekki hægt að tengja símanúmer þangað inn. Maðurinn sem á að vera að laga hluti kallar sig pípara, hann er búin að vera að leita að leka úr íbúðinni minni í þrjár vikur, valsar inn og út með lykil og ég geri ekki annað en að þrífa karlmans pissuslettur af klósettgólfinu mínu, en það lekur ennþá.

Ég hef getað hlegið að þessu hingað til.

Í gærkvöldi var ég að koma heim, mætti manni í stiganum sem var að loka fyrir gasið í öllum íbúðum vegna "Massive gasleak" og ég fékk skjal í hendurnar sem sagði að lekinn væri það mikill að hann væri "Immediately Dangerous" og að við værum öll búin að verða fyrir Carbon Monoxide eitrun. Íbúðin og heita vatnið er kynnt með gasi.

Já það eru ekki alltaf jólin í London.

Wednesday, December 12, 2007

Komnar inn myndir

Ég er búin að bæta við myndum frá heimsókninni og afmælinu hjá Þurý. Myndin hér fyrir neðan er afskaplega lýsandi dæmi um hann Gunnar Stein, en hann gerði ekkert annað en að þamba bleika drykki meðan hann var hérna;)

Enda rugluðumst við oft þegar við vorum að spjalla við hann og oft var bara sagt "stelpur" þó hann væri með:) Ef einhverjum datt í hug að fara á strippbúllu þá kom sú hugmynd ekki frá honum. Að fá sér nýtt tattú kom heldur ekki frá honum, en það er líklega eins gott að hann var hérna, þið viljið ekki vita hvernig tattú ég hefði annars fengið mér.

Já, ég er heima hjá mér þriðja kvöldið í röð sem hefur ekki gerst í langan tíma, er að safna orku fyrir jólin heima á Íslandi. Ég er líka komin með kvef eftir kuldakastið sem gengur yfir London sem ég held að sé verst inní mínu herbergi. Kertaljós gera þó eitthvað, flísgallinn líka.

..sagan um fullnægingarnar hehe, við Alla ákváðum að það væri komin tímim á að fá sér skot á þessum frábæra veitingastað, auðvitað vildum við ekkert annað en fullnægingu sem er besta skot í heimi. Þegar Alla sneri sér að þjóninum og bað um "two orgasm's" fyrir okkur tvær þá roðanaði hann og blánaði í langa stund áður en hann hikstaði uppúr sér að hann ætti þær nú til. Ég roðnaði líka eins og karfi svona honum til samlætis:) En glottið fór ekki af honum það sem eftir var kvölds og þegar við vorum búnar með drykkinn kom hann og spurði mig sérstaklega hvernig fullnægingin hefði verið.

Við endum svo á mynd af Gunnari Steini takandi Moonwalkið.







Tuesday, December 11, 2007

Fokk hvað er kalt í London

Jæja, langt síðan síðast...
Ég er semsagt að drepast úr kulda undir tveimur sængum inní herberginu mínu. Ég velti því stundum fyrir mér hvernig mér datt þessi arfavitleysa í hug, ég hafði það svo gott heima.


En það er aldeilis nóg búið að vera að gerast hjá mér sem skýrir kannski bloggleysið og að fólkið í ræktinni er hætt að reyna að hringja í mig.

Gunnar Steinn var hjá mér í rúmlega viku, þvílíkt fjör og vitleysa, held ég hafi átt einn dag þar sem við fengum okkur ekki í glas.. eða tvo. Hann var dregin með í jólapartý vinnunnar sem var að sjálfsögðu á þriðjudagskvöldi að hætti Breta... það endaði með því að ég tók mér frí í vinnunni daginn eftir þar sem hvítvínsglösin voru helst til mörg, ég hef ekki verið svona þunn lengi (miðvikudagurinn var semsagt áfengislausi dagurinn).
Svo var haldíð í Covent Garden í mat og fleiri fíflalæti á föstudeginum, ammæli hjá Þurý á laugardagskvöldið sem var alveg frábært.
Gunnar Steinn fór svo á sunnudag og ég er eiginlega bara búin að vera að gera ekki neitt eftir það. (nema sýna mig í vinnunni). Ég sleppti meira að segja jólamat hjá IT-deildinni í gærkvöldi þar sem ég bara nennti ekki meiru..

Sambúðin er búin að ganga upp og ofan hjá okkur Birni, ég tala bara um Björn því maður finnur ekki fyrir Söru. Eina nóttina skiptumst við á að kveikja og slökkva á hitanum til skiptist.. hann er að spara og mér er kalt.
Svo er hann voða almennilegur þess á milli, í gærkvöldi var ég að hjálpa honum að flytja brjálæðislega þungt tæki sem hann er búin að eyða löngum tíma í að smíða og svo vorum við að dást að því og hlusta á hávaðan úr því. Björn er nefnilega svoldið spes listamaður því hann er nörd eins og ég. Ég er búin að lofa að hjálpa honum með verkefni eftir áramót og kíkja með honum nirðí skóla að sjá hvað menn eru að gera þar. Það breytir því ekki að hann hafði slökt á hitanum í nótt og ég vaknaði með grýlukerti á nefinu í morgun. Undarlegt að hann gerir þetta ekki þegar ég er með gesti...
Það eru engar nýjar myndir í bili, Björn er með vélina í láni til að taka video af nýja tækinu sínu, set inn næst þegar ég blogga:)

Ég kem svo heim eftir eina og hálfa viku, verð í allavega viku, kannski lengur þar sem áramótaplönin hafa aðeins breyst. Allavega hlakkar mig til að komast inn í heitt hús þar sem ég þarf ekki að sofa í flíspeysunni.

Gunnar Steinn talaði um hvað hann þyrfti alltaf að labba mikið í London og sá mest eftir að hafa ekki mælt hvað hann tók mörg skref þegar hann var hér:) Ég fór reyndar að spá í því að ég labba að minnsta kosti klukkutíma á dag til og frá vinnu, svo bætist við allar ferðirnar annað.. enda sér maður ekki marga feita hér.
Well, nýjar myndir koma þegar ég hef endurheimt myndavélina mína, en ég setti hinsvegar inn myndir um daginn af ömmuferðinni 2007 sem ég náði óvænt útaf vinnuferð á klakann.